Kjarasamningur við ríkið - Kynningarfundur
Atkvæðagreiðsla hefst á hádegi fimmtudaginn 6. febrúar.
Síðastliðinn föstudag, 31. janúar, fékkst niðurstaða í samningaviðræður Kjaradeildar VFÍ og ríkisins.
Kynning á nýjum kjarasamningi mun fara fram í fundarsal VFÍ að Engjateigi 9, 105 Reykjavík - miðvikudaginn 5. febrúar kl. 16:00.
Þau sem geta ekki verið á staðnum geta farið inn á vefslóð tíu mínútum fyrir fundinn. Upplýsingar um slóðina verða sendar út á fundardegi.
Atkvæðagreiðsla um samninginn mun hefjast á hádegi fimmtudaginn 6. febrúar og standa til hádegis miðvikudaginn 12. febrúar.
Nýi kjarasamningurinn, ásamt upplýsingum um fundinn, hefur verið sendur félagsmönnum VFÍ sem heyra undir samninginn.
Búið að skrifa undir. - Á myndinni eru samninganefndir VFÍ og ríkisins við fjárhirslu ríkisins.
- Næsta færsla
- Fyrri færsla