Kosið í stjórn VFÍ - Kynning á frambjóðendum

Í aðdraganda aðalfundar verður kosið í stjórnir Verkfræðingafélags Íslands. Kosningin er rafræn og fer fram dagana 11. - 18. maí.

7. maí 2020

Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands 2020 verður haldinn 26. maí kl. 17:00 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9.


Í aðdraganda aðalfundar fara fram kosningar í stjórnir félagsins. Kosningin er rafræn og fer fram dagana 11. - 18. maí. Þeir sem ekki hafa skráð netfang geta kosið á skrifstofu Verkfræðingafélags Íslands, Engjateigi 9, 105 Reykjavík, á skrifstofutíma.Fjórir buðu sig fram til aðalstjórnar en kosið verður um meðstjórnanda og varameðstjórnanda. Sjálfkjörið verður í stjórn Kjaradeildar VFÍ og stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi. Fyrirtækið Maskína mun sjá um framkvæmd kosningarinnar.

Kosning til aðalstjórnar VFÍ

Kosið er um einn meðstjórnanda og einn varameðstjórnanda. - Báða til tveggja ára. (Niðurröðun ræðst af atkvæðamagni). 

Anna Beta Gísladóttir 
Jóhannes Benediktsson
Kristján Þorvaldsson
Þröstur Guðmundsson

Kosning til stjórnar Kjaradeildar VFÍ. (Sjálfkjörið).

Kosning til stjórnar Stjórnenda og sjálfstætt starfandi (Sjálfkjörið). 


Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands 2020 verður haldinn 26. maí kl. 17:00 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Aðalfundur átti upphaflega að vera 20. apríl en var frestað vegna COVID-19 faraldursins. Mögulegt verður að tengjast í fjarfundi og verða upplýsingar sendar félagsmönnum fyrir fundinn.

Stjórnir VFÍ

Aðalstjórn VFÍ. Stýrir málefnum félagsins, sér til þess að skipulag og starfsemi sé í góðu horfi og í samræmi við lög félagsins.

Stjórn Kjaradeildar. Deild launþega í VFÍ fer með yfirstjórn kjaramála, m.a. gerð kjarasamninga og gerð reglna fyrir kjarasjóði. 

Stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi. Sinnir málefnum stjórnenda og sjálfstætt starfandi og þeirra sem kjósa að standa utan Kjaradeildar. Meginverkefnið er að stuðla að virkri samfélagsumræðu á áhugasviðum félagsmanna. Deildin sinnir ekki kjaramálum. 

Upplýsingar um núverandi stjórnir.