• likamsræktarlóð

Líkamsræktarstyrkir - umsókn fyrir 1. desember

Til að nýta skattaafslátt þurfa umsóknir að berast fyrir 1. desember.

25. nóv. 2019

Skattfrjáls styrkur til heilsueflingar er að hámarki 60 þúsund krónur á almanaksárinu miðað við áunnin réttindi. Til að nýta þennan skattaafslátt á árinu 2019 verða umsóknir að berast fyrir 1. desember nk. – Annars næst ekki að afgreiða styrkinn fyrir áramót og verður þá að greiða skatt af upphæðinni.

Almennt gildir að forsenda endurgreiðslu er framvísun fullgildra greiðslukvittana vegna útlagðs kostnaðar.

Við hvetjum sjóðfélaga í Sjúkrasjóði VFÍ (almennur markaður) og Styrktarsjóði VFÍ (opinber markaður) að kynna sér starfsreglur sjóðsins.

Sótt er um rafrænt á vef VFÍ. 

Við minnum félagsmenn á að nota "Mínar síður" þar er hægt að skoða eldri umsóknir, fá upplýsingar um réttindi o.fl.