• Isl_4-1-

Sumarúthlutun Orlofssjóðs VFÍ

Umsóknarfrestur er til 31. mars.

12. mar. 2021

Nú er hægt að sækja um sumarúthlutun hjá Orlofssjóði VFÍ. Sömu kostir eru í boði og í fyrra en einnig hefur verið bætt við þremur íbúðum við Kjalarsíðu á Akureyri. Umsóknarfrestur er til 31. mars. 

Sem fyrr er úthlutað eftir punktastöðu og möguleikar á því að fá úthlutað eru betri eftir því sem fleiri kostir eru valdir. Sótt er um á orlofsvef VFÍ: http://www.orlof.is/vfi/ (velja:„Umsókn um úthlutun" á stikunni efst).

Valdir eru allt að sex kostir sem raðað er í forgangsröð. Bæði er hægt að smella á "UMSÓKN UM ÚTHLUTUN" og velja þar staðsetningu og tímabil. Einnig er hægt að smella á "LAUS TÍMABIL" velja mánuð og smella á staðsetningu og vikuna sem óskað er eftir. Þá kemur á skjáinn textinn: "Vilt þú senda umsókn eða velja fleiri/breyta valmöguleikum." Þá er hægt að velja fleiri vikur eða senda umsókn. Aðeins er hægt að senda eina umsókn. Á umsóknartímabilinu er alltaf hægt að fara inn á svæðið "SÍÐAN MÍN" eyða eldri umsókn og útbúa nýja. (Muna eftir að senda).

Úthlutað verður eftir punktaeign félagsmanna, sá sem flesta hefur punktana fær umbeðna viku. Þær vikur sem ekki ganga út eftir úthlutun verða boðnar þeim sem sóttu um og ekkert fengu. Í lokin verða svo lausar vikur boðnar öllum sjóðfélögum, þá gildir reglan fyrstur kemur – fyrstur fær.

Listi yfir orlofskosti sumarið 2021

Orlofshús Árnesi. - Orlofshús Húsafelli. - Fjögur orlofshús í Klapparholti Borgarfirði. - Þrjú orlofshús í Hraunborgum, þar af eitt nýtt og stærra. - Íbúð á Ísafirði. - Fimm íbúðir á Akureyri (Sómatún, Tröllagil og Kjalarsíða). - Orlofshús að Hrísum í Eyjafirði. - Orlofshús í Vopnafirði. - Orlofshús að Staffelli í Héraði. - Íbúð við Nónhæð, Garðabæ.

Auk þess býður sjóðurinn leigu á tjaldvagni og niðurgreiðslu á hótelgistingu með ferðaávísun. Gjafabréf Icelandair, Útilegukortið og Veiðkortið eru einnig í boði. 

Vikan kostar kr. 20.000.- Nema nýja í nýja orlofshúsinu í Hraunborgum þar kostar vikan kr. 25.000.- Tjaldvagn í viku kostar kr. 15.000.-

Vegna afnota eiganda bústaðarins að Hrísum eru tvær vikur að sumri ekki til útleigu. (25. júní til 2. júlí og 30. júlí til 6. ágúst).

Leigt er frá föstudegi til föstudags. (Tjaldvagn frá fimmtudegi til miðvikudags).

Sumartímabilið 2021 er frá 4. júní til 27. ágúst. Fyrir síðustu vikuna í júní, allar vikur í júlí og fyrstu vikuna í ágúst eru dregnir frá 36 punktar. Fyrir aðrar vikur að sumri dragast frá 30 punktar.

Punktastaða miðast við áramót 2020-2021.

Upplýsingar um Orlofssjóð VFÍ.

Frá og með sumri 2020 er hægt að kaupa Ferðaávísun, inneign sem hægt er að nota til að greiða fyrir gistingu hjá fjölmörgum samstarfsaðilum sjóðsins. Gisting á Icelandair hótelum er nú innan ferðaávísunar og ekki lengur seldir hótelmiðar. Nánari upplýsingar. 

Tölvupóstur um úthlutunina var sendur sjóðfélögum 12. mars og ítrekun 29. mars 2021.