Teningurinn - óskað eftir tilnefningum

Skilafrestur er til 15. mars 2024

19. des. 2023

Á Degi verkfræðinnar 19. apríl næstkomandi verður Teningurinn afhentur sem er viðurkenning Verkfræðingafélags Íslands fyrir framúrskarandi verkefni eða framkvæmd. Teningurinn er veittur á Degi verkfræðinnar ár hvert og eru það verkefni fyrra árs sem koma til greina. 

Einfalt að senda inn tilnefningu

Ferli vegna tilnefninga er í tveimur þrepum. Í upphafi er nægilegt að senda inn ábendingu um verkefni sem er talið koma til greina. Þar þarf að koma fram stutt lýsing á verkefninu og upplýsingar um tengilið sem má hafa samband við, netfang hans og símanúmer. 

Dómnefnd fer yfir ábendingarnar og óskar eftir ítarlegri upplýsingum um verkefni sem hún telur koma til greina. Tengiliður við dómnefnd er Sigrún S. Hafstein sem jafnframt veitir nánari upplýsingar. 

Senda inn ábendingu.

Um Teninginn

Markmið viðurkenningarinnar er að vekja athygli á vel útfærðum og áhugaverðum verkefnum sem verkfræðingar og tæknifræðingar vinna að.

Viðurkenningin er veitt fyrir verkefnið í heild og er það eigandi (bakhjarl) verkefnisins sem hana hlýtur. Verkefni sem eru tilnefnd geta verið af ýmsum toga, til dæmis framkvæmdaverkefni, nýsköpunarverkefni, hugbúnaðarverkefni eða umbótaverkefni. Verkefni unnin erlendis af íslenskum fyrirtækjum koma einnig til greina.

Viðmið dómnefndar

Sex viðmið eru lögð til grundvallar í mati dómefndar:

- Hver er samfélagslegur ávinningur verkefnisins?
- Hvert er nýsköpunargildi verkefnisins?*
- Stóðst verkefnið kröfur til gæða?
- Voru öryggis- og heilbrigðismál og vinnuumhverfi verkefnisins til fyrirmyndar?
- Stóðst verkefnið tímaáætlun?
- Stóðst verkefnið kostnaðaráætlun?

Hver dómnefndarmaður gefur einkunn fyrir hvert viðmið og það verkefni sem hlýtur hæstu meðaltals einkunn hreppir verðlaunin.
* Nýsköpunargildi hefur víða skírskotun og er ekki bundið við uppfinningu nýrrar vöru eða búnaðar. Getur til dæmis falist í nýjum leiðum í framkvæmdum, eða verkþættir betur útfærðir en áður.

Tilnefningar

Eigandi (bakhjarl) getur tilnefnt eigið verkefni einnig geta félagsmenn Verkfræðingafélags Íslands sent inn tillögur. Koma þarf fram hver eigandi/bakhjarl verkefnisins er auk helstu samstarfsaðila; hönnuðir, verkefnisstjórar og hver þáttur verkfræðinga og tæknifræðinga var í verkefninu.

Frétt um afhendingu Teningsins 2023.

Verkfræðilegur verðlaunagripur

Verðlaunagripurinn hefur vakið verðskuldaða athygli. Hönnuðir eru Narfi Þorsteinsson og Adrian Rodriques. Í skemmtilegu myndbandi segja þeir frá hugmyndinni að baki Teningnum og gerð hans.

Um gerð Teningsins