• foss_regnbogi

Þjónustukönnun - Mikilvægt að svara

Maskína framkvæmir þjónustukönnun fyrir VFÍ.

27. nóv. 2019

Fyrirtækið Maskína gerir nú þjónustukönnun fyrir Verkfræðingafélag Íslands. Góð svörun í könnuninni er lykilatriði í að greina hvað er gert vel og hvað má betur fara. 

Könnunin er mjög stutt, það tekur einungis örfáar mínútur að svara. Það skiptir miklu máli að allir svari og því hvetjum við félagsmenn eindregið til að taka þátt og svara fljótt. 

Sem fyrr segir sér rannsóknarfyrirtækið Maskína um framkvæmd könnunarinnar fyrir hönd Verkfræðingafélags Íslands. Farið er með öll svör sem trúnaðarmál og þess gætt að þau séu ekki rekjanleg til einstaklinga.