Umsóknir um sumarúthlutun orlofssjóðs

Umsóknarfrestur er til 2. apríl 2024.

10. mar. 2024

Nú er hægt að sækja um sumarúthlutun hjá Orlofssjóði VFÍ. Umsóknarfrestur er til 2. apríl nk.
Úthlutað var eftir punktaeign félagsmanna, sá sem flesta hefur punktana fær umbeðna viku. Þær vikur sem ekki ganga út eftir úthlutun verða í boði fyrir þau sem sóttu um og ekkert fengu. Í lokin verða svo lausar vikur boðnar öllum sjóðfélögum, þá gildir reglan fyrstur kemur – fyrstur fær.

Sótt er um á orlofsvef VFÍ: http://www.orlof.is/vfi/ (velja:„Umsókn um úthlutun" á stikunni efst).

Leigt er frá föstudegi til föstudags. (Tjaldvagn frá fimmtudegi til miðvikudags).

Sumartímabilið 2024 er frá 31. maí til 30. ágúst. Sumar eignir eru ekki í boði allt tímabílið. 

Fyrir síðustu vikuna í júní, allar vikur í júlí og fyrstu vikuna í ágúst eru dregnir frá 36 punktar. Fyrir aðrar vikur að sumri dragast frá 30 punktar.

Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign).

Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.

Punktastaða miðast við áramót 2023-2024 og verður punktastaða uppfærð hjá öllum fyrir úthlutun.

Upplýsingar um Orlofssjóð VFÍ.

Sjóðurinn býður einnig upp á Ferðaávísun, inneign sem hægt er að nota til að greiða fyrir gistingu hjá fjölmörgum samstarfsaðilum sjóðsins.  Nánari upplýsingar.


Ljósmynd: Einar H. Reynis. - Meðalfellsvegur.