• stuðlaberg

Vetrarúthlutun Orlofssjóðs VFÍ

Opnað fyrir umsóknir 18. ágúst.

17. ágú. 2017

Frá og með föstudeginum 18. ágúst kl. 10:00 verður hægt að bóka orlofsvikur frá 7. september 2017 til 17. maí 2018 á orlofsvef OVFÍ.

Um vetrarleigu gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Athugið að bókanir eru ekki endurgreiddar. Ef afpantað er með lengri en einnar viku fyrirvara  myndast inneign að hámarki 75% sem nýtist umsækjanda við næstu umsókn. (Ef afpantað er með viku eða styttri fyrirvara myndast ekki inneign). 

Eins og áður verður vetrarfrísvikum grunnskólanna úthlutað sérstaklega. Um er að ræða vikurnar:  19. október 2017 til 2. nóvember 2017 og 15. febrúar 2018 til 1. mars 2018. Páskavikunni 29. mars til 5. apríl 2018 verður einnig úthlutað sérstaklega.

Í vetrar- og páskafrísvikum er sem fyrr  úthlutað  eftir punktaeign félagsmanna. Frádráttur fyrir úthlutun er 36 punktar (sama og að sumri).

Eins og áður eru orlofshúsin leigð frá fimmtudegi til fimmtudags. Hver félagsmaður getur bókað eina orlofsviku fyrir áramót og aðra eftir áramót. Athugið að orlofsvikur fást ekki endurgreiddar.

Teknir verða 3 punktar fyrir hverja orlofsleigu, vikan kostar kr. 19.000.-

 Tekið skal fram að kerfið heimilar mínuspunktastöðu, þ.e. – 36 punkta.

Skrifstofan veitir nánari upplýsingar. Senda tölvupóst.