Bergþór Þormóðsson, rafmagnstæknifræðingur
Framboð í stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi í VFÍ.
Nafn: Bergþór Þormóðsson.
Fæðingardagur: 1. maí 1953.
Menntun: B.Sc. í rafmagnstæknifræði frá Háskólanum í Áróslum.
Reynsla af félagsstörfum og önnur starfsreynsla
Hef starfað fyrir Tæknifræðingafélagið (nú VFÍ) frá 1987. Var formaður TFÍ og hef átt sæti í Menntunarnefnd.
Starfsferill:
2011 - 2017 BSI á Íslandi ehf. Sérfræðingur.
BSI á Íslandi ehf er faggildur úttekaraðili sem sérhæfir sig í alþjóðlegum stjórnkerfisstöðlum. Sérfræðingur í GAP-greiningu verkferla og færnimati.
2010 - 2011 Verkfræðistofan Leiðir ehf. Framkvæmdastjóri.
2007 – 2010 Ístak hf. Sérfræðingur á svið i gæða- og öryggismála. Öryggis- og umhverfisúttektir á vinnustöðum og yfirferð öryggismála með starfsmönnum. Áhættugreining verkþátta.
2006 Ískraft hf. Deildarstjóri iðnstýrisviðs.
1992 – 2006 Orkuveita Reykjavíkur. Sérfræðingur í Gæða-, umhverfis og öryggismáladeild. Deildarstjóri Jaðarveitna Orkuveitu Reykjavíkur. Verkefnastjóri sameiningar veitufyrirtækja Reykjavíkur. Gæðastjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
1988 – 1992 Heimilistæki hf. Deildarstjóri tæknideildar Heimilistækja hf.
1987 Vista - Verkfræðistofa. Hönnun stýringa og rafkerfa.