Páll Árni Jónsson, tæknifræðingur
Framboð til formanns Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi í VFÍ.
Nafn: Páll Árni Jónsson.
Fæðingardagur: 5. október 1950.
Starf: Stjórnarformaður.
Menntun: Símvirkjun (nú rafeindavirkjun) hjá Símanum, iðnfræði frá Tækniskóla Íslands 1975, B.Sc. próf í tæknifræði frá Odensen Teknikum 1978.
Reynsla af félagsstörfum og önnur starfsreynsla
Ég var í stjórn Kjarafélags Tæknifræðinga
frá 1980 – 84, í stjórn Tæknifræðingafélags Íslands á árunum 1993 – 97, þar af
formaður tvö síðustu árin. Var í Menntunarnefnd TFÍ. Þá má nefna að ég var í Launmálaráði BHM á árunum 1981 - 1984. Í dag er ég í Merkisnefnd VFÍ.
Formaður Veiðifélags Laxár á Ásum frá árinu 2005 til dagsins í dag. Þá hef ég komið að ýmsum félögum í sambandi við verndun íslenska laxastofnsins.
Mestan hluta starfsævinnar hef ég unnið við fjarskipti. Vann sem tæknifræðingurá Símanum, Sjónvarpinu og IBM á Íslandi. Var framkvæmdastjóri Mílu á árunum 2006 - 2014. Frá árinu 1996 hef ég verið stjórnarformaður Glófaxa og eftir starfslok hjá Mílu hef ég einnig komið að daglegum rekstri fyrirtækisins.
Helstu áherslur vegna framboðs
- Að vinna að eðlilegu rekstrarumhverfi fyrirtækja.
- Að tryggja að m.a. að eftirlitsstofnanir taki mið af séríslensku aðstæðum. Svo sem útfrá veðurfari eða smæð samfélagsins.
- Að upplýsa almenning um mikilvægi tæknifyrirtækja.