Félagafjöldinn er rúmlega sex þúsund og félagsgjald í VFÍ er lágt miðað við önnur stéttarfélög á Íslandi.
Eingöngu Verkfræðingafélag Íslands fer með kjarasamningsumboð fyrir verkfræðinga og tæknifræðinga.
Mikilvægt er að kynna sér vel hvað hin ýmsu stéttarfélög eru raunverulega að bjóða.
Hvaða þjónusta er í boði? Hversu hátt er félagsgjaldið? Og ekki síst - á ég samleið með öðrum félagsmönnum, eru hagsmunir okkar sameiginlegir?
Verkfræðingafélag Íslands er fagfélag og kjarafélag verkfræðinga og tæknifræðinga á Íslandi. Félagið er lögformlegur samningsaðili um kaup og kjör félagsmanna. - Með öðrum orðum; önnur stéttarfélög gera ekki kjarasamninga fyrir hönd verkfræðinga og tæknifræðina.
Það skiptir miklu máli að vera í traustu stéttar- og fagfélagi sem hefur langa sögu og tengingu inn í náms- og starfsumhverfi félagsmanna.
Löggilt starfsheiti - nám erlendis
VFÍ er umsagnaraðili um löggiltu starfsheitin verkfræðingur og tæknifræðingur og hjá félaginu er gríðarleg þekking á verkfræðinámi víða um heim sem tryggir að félagið getur liðsinnt háskólanemum varðandi val á framhaldsnámi.
Lágt félagsgjald
Athugið að félagsgjald í VFÍ er lágt miðað við það sem gengur og gerist á íslenskum vinnumarkaði. Félagsgjaldið er föst upphæð, 3.750.- krónur á mánuði en ekki prósenta af heildarlaunum. Ungfélagar greiða ekki félagsgjald.
Dæmi um önnur félög: FÍH (0,9%), VR (0,7%), BHM (allt að 1,5%), Viska (0,95%), Efling (0,7%).
Dæmi af launþega með 900 þúsund í heildarlaun á mánuði:
Félagsgjald í Verkfræðingafélaginu: Kr. 3.750.-
Félagsgjald í Visku (0,95%): Kr. 8.550.-
Mismunur á mánuði: Kr. 4.800.- Mismunur á ári: Kr. 57.600.-
Heiðursfélagar, ungfélagar og félagar sem eru í fullu námi greiða ekki félagsgjöld. Félagar sem hafa náð 70 ára aldri eða eru hættir að vinna sökum aldurs greiða ekki félagsgjald.
Allir félagsmenn í VFÍ geta sótt rafrænt félagsskírteini sem veitir ýmiss konar afslætti.
Leiðbeiningar neðst í þessum texta.
Stéttarfélag tölvunarfræðinga og Stéttarfélag byggingarfræðinga hafa gert þjónustusamning við skrifstofu VFÍ sem tryggir þeim þjónustu á sviði kjaramála.


