• Picture1_1730449084572

Kynningarfundur vegna Rýniferðar til Japan 2025.

Kynningarfundur vegna Rýniferðar til Japan 2025. Streymt er frá fundinum.


RÝNIFERÐIR fyrir tæknifræðinga og verkfræðinga sem hófust árið 1998 á vegum Tæknifræðingafélags Íslands hafa frá upphafi notið mikilla vinsælda. Nú er stefnt á 25. ferðina og að þessu sinni er ferðinni heitið til Japan dagana 28./29. ágúst - 13./14. september.

KYNNINGARFUNDUR verður þriðjudaginn 12. nóvember kl. 17:00 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, STREYMT verður frá fundinum. Farið verður yfir drög að dagskrá ferðarinnar, flugtíma, hótelgistingar, skoðunarferðir, EXPO 2025 o.fl. - Það er fullt í salinn - hvetjum áhugasama til að fylgjast með í streymi, ÞAÐ ÞARF EKKI AÐ SKRÁ SIG.

Streymi frá kynningarfundi.