Við viljum vera til fyrirmyndar.

Markmiðið með umhverfisstefnu VFÍ er að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum bæði fyrir félagsmenn og samfélag. 

Umhverfisstefna VFÍ

Á haustmánuðum 2016 var gert átak í að skoða umhverfismál og umhverfisáhrif af starfsemi skrifstofu VFÍ og Verkfræðingahúss frá ýmsum hliðum. Líflegar umræður sköpuðust og starfsfólk vaknaði til vitundar um mikilvægi þess að draga úr umhverfisáhrifum sínum. Í framhaldinu var umhverfisstefna Verkfræðingafélags Íslands útbúin með það að markmiði að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum bæði fyrir félagsmenn og samfélag. Stefnan var samþykkt af starfsfólki VFÍ í febrúar 2017 og verður vonandi lifandi í hugum starfsfólks og nefndarmanna í sinni vinnu fyrir Verkfræðingafélag Íslands. 

Umhverfisstefna VFÍ
Verkfræðingafélag Íslands vill stuðla að þróun samfélagsins með sjálfbærni að leiðarljósi og vill vera til fyrirmyndar í umhverfismálum. Félagið leitast við að hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag með meðvitaðri ákvarðanatöku og þjónustu við félagsmenn. 

Umhverfisstefna félagsins er liður í daglegum rekstri skrifstofu Verkfræðingafélagsins til að lágmarka álag á umhverfið og vekja áhuga starfsfólks og félagsmanna á mikilvægi þess að huga að umhverfismálum. Stefnan tekur til allra þátta í starfsemi skrifstofunnar, svo sem við innkaup, auðlindanotkun, meðferð úrgangs og almennan rekstur Verkfræðingahúss. 

Markmið VFÍ í umhverfismálum

  • Að draga úr umhverfisáhrifum rekstrar félagsins og Verkfræðingahúss í hvívetna.
  •  Að stefnumótun og úrbætur í rekstri taki mið af umhverfismálum.
  • Að vera fyrirmynd félagsmanna í umhverfismálum.
  • Að bæta umhverfisvitund starfsfólks og félagsmanna. 

Aðgerðir í umhverfismálum

Innkaup

  • Við innkaup eru umhverfismerktar vörur og þjónusta valin þar sem þess er kostur.
  • Við innkaup er tekið tillit til endingartíma, efna- og orkunotkunar vörunnar.
  • Við innkaup er innlend framleiðsla valin frekar en innfluttar vörur þegar þess er kostur.
  • Dregið er úr notkun einnota aðfanga eftir fremsta megni, svo sem einnota borðbúnaðar og óþarfra umbúða.

Orkunotkun

  • Tölvubúnaður er valinn með tilliti til orkunotkunar og stilltur þannig að lágmarksorkunotkun verður við notkun hans.
  • Notuð er LED-lýsing þar sem því verður við komið.
  • Öll óþarfa ljós eru slökkt að loknum vinnudegi og þegar ekki er nauðsynlegt að hafa kveikt.

Efnanotkun

  • Öll ræstiefni eru merkt með viðurkenndum umhverfismerkjum.
  • Ræstingarþjónusta er keypt af vottuðum aðilum.
  • Farið er sparlega með ræstiefni.

 Pappírsnotkun

  • Allar tölvur verði stilltar þannig að sjálfkrafa prentist báðum megin á allan pappír og í svart/hvítum lit.
  • Starfsmenn eru hvattir til að prenta ekki að óþörfu og lesa frekar af tölvuskjám.
  • Leitar er við að geyma gögn frekar á rafrænu formi en á pappír.

Matarsóun

  • Á fundum og málstofum er boðið upp á kranavatn, ásamt öðrum drykkjum.
  • Leitast er við að kaupa mat aðeins í hæfilegu magni.
  • Leitast er við að kaupa mat sem hefur gott geymsluþol.
  • Við innkaup er raðað í skápa og ísskápa eftir fyrningardagsetningum. 

Úrgangur, myndun og meðferð

  • Lágmarka skal sóun á öllum sviðum.
  • Endurvinnanlegur úrgangur er flokkaður og skilað til endurvinnslu.
  • Lífrænum leifum er skilað til moltugerðar.
  • Öllum spilliefnum er skilað til viðurkenndra móttökuaðila, svo sem rafhlöðum, prenthylkjum, ljósaperum og hreinsiefnum.
  • Öllum öðrum úrgangi er fargað á viðeigandi hátt. 

Samgöngur

  • Samgöngustyrkur er í boði fyrir starfsfólk.
  • Sturtuaðstaða og hjólageymsla er í boði fyrir starfsfólk.
  • Leitast er við að velja umhverfisvænar leiðir þegar ferðast er á vegum Verkfræðingafélagsins og samnýta ferðir þegar hægt er.
  • Hleðslustöðvar eru í boði fyrir starfsfólk og gesti Verkfræðingahúss sem eru á rafbílum.
  • Leitast er við að halda fjarfundi eftir því sem kostur er og er slíkur búnaður í fundarherbergjum.

Fræðsla

  • Starfsfólk Verkfræðingafélagsins og Verkfræðingahúss og félagsmenn VFÍ fá reglulega fræðslu um umhverfismál 
  • Í upphafi funda og málstofa á vegum Verkfræðingafélagsins eru gestir fræddir um flokkun úrgangs í Verkfræðingahúsi