Að semja um hærri laun

Námskeið í launaviðtölum.

  • 17.10.2019, 13:00 - 16:00, Engjateigur 9
  • fuglar í oddaflugi

Námskeið í launaviðtölum. Haldið í Verkfræðingahúsi, fimmtudaginn 17. október kl. 13-16. Leiðbeinandi er Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent við Viðskipta- og hagfræðideild HÍ.

Starfsmaður hefur samningsbundinn rétt á viðtali við yfirmann sinn einu sinni á ári um störf sín og mögulega leiðréttingu á starfskjörum. Óski starfsmaður eftir viðtali á að veita það innan tveggja mánaða og niðurstaða viðtalsins á að liggja fyrir innan mánaðar.

Í launaviðtali er ekki einungis verið að semja um laun heldur einnig um vinnuframlag og mikilvægi starfsmannsins og horft til þeirra þátta er snúa að starfsumgjörð viðkomandi.  

Launaviðtalið þarf ekki eingöngu að snúast um launin. Sumir kjósa að semja um önnur starfskjör eins og sveigjanlegan vinnutíma, fleiri orlofsdaga, námsstyrk, ferðastyrk, bifreiðastyrk o.fl.

Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið og er skráning með tölvupósti: kjaramal@verktaekni.is