Aðalfundur Austurlandsdeildar
Aðalfundur Austurlandsdeildar VFÍ verður haldinn miðvikudaginn 21. mars. Gestur fundarins verður Dr. Þórður Víkingur Friðgeirsson véla- og rekstrarverkfræðingur og mun hann segja frá leiðtogafræðum og núvitund í anda Google. Fundartími- og staður auglýstur síðar.
Mindful Leadership er ný vídd í stjórnendafræðum sem miðar að aukinni meðvitund og hæfni til að halda einbeitingu og skapa rými til forystu í flóknu og krefjandi starfsumhverfi nútímans.
Mörg af öflugustu fyrirtækjum heims á borð við Google, Apple, LinkedIn, eBay og Harvard Business School hafa tekið Mindfulness í þjónustu sína með árangri sem eftir er tekið um allan heim. Í fyrirlestrinum verður sérstaklega litið til Google sem rekur þjálfunardagskrá fyrir starfsfólk sitt sem kallast SYI (Search Inside Yourself).