Aðalfundur Austurlandsdeildar VFÍ
Fimmtudaginn 4. apríl í Þórðarbúð Reyðarfirði.
Aðalfundur Austurlandsdeildar Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 4. apríl 2019.
Fundurinn verður í Þórðarbúð (Björgunarsveitarhúsinu á Reyðarfirði) og hefst kl. 16:30.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf, m.a. kosning tveggja stjórnarmanna og formanns auk varamanns.
Á fundinn mæta fulltrúar frá VFÍ.
Fundurinn hefst með því að Gunnar Steinn Gunnarsson, yfirmaður matfiskaeldis hjá Laxar fiskeldi er með fyrirlestur um starfsemina. Laxar fiskeldi er m.a með sjókvíaeldi í Reyðarfirði.
Boðið verður upp á léttar veitingar.