Aðalfundur Norðurlandsdeildar VFÍ
Áhugasamir eru hvattir til að bjóða sig fram í stjórn deildarinnar.
Aðalfundur Norðurlandsdeildar Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn laugardaginn 6. apríl 2024 í golfskálanum Jaðri Akureyri.
Aðalfundur hefst kl. 18:00, venjuleg aðalfundarstörf.
Áhugasamir félagsmenn eru beðnir um að bjóða sig fram til stjórnarsetu, 1-2 sæti eru laus í stjórn/varastjórn.
Klukkan 20:00 hefst veisla með mat frá Jaðar Bistró, makar eru velkomnir í mat.
Veislustjóri er Svavar Knútur.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku eigi síðar en þriðjudaginn 2. apríl kl. 12:00 til bjorgvin@avh.is og tilgreinið hvort maki komi með.
Með bestu kveðju stjórn Norðurlandsdeildar VFÍ.