Aðalfundur Norðurlandsdeildar VFÍ
Óskað eftir framboðum í stjórn.
Aðalfundur Norðurlandsdeildar Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn föstudaginn 21. mars kl. 18:30 í golfskálanum Jaðri á Akureyri. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Áhugasamt félagsfólk er beðið að bjóða sig fram í stjórn/varastjórn, það eru 1-2 sæti laus.
Klukkan 20:00 hefst veisla með mat frá Jaðar Bistró, makar eru velkomnir í mat. Gestir mæti í hús á bilinu 19:30-20:00.
Veislustjóri er Rúnar Eff.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku eigi síðar en miðvikudaginn 19. mars kl. 12 á hádegi til Víðis Bjarkasonar, vidir@raftakn.is og tilgreinið hvort maki komi með. Matur er í boði félagsins.
Með bestu kveðju, stjórn Norðurlandsdeildar VFÍ.