Aðalfundur Öldungadeildar VFÍ
Aðalfundur ÖVFÍ verður miðvikudaginn 4. maí 2022.
Miðvikudaginn 4. maí verður aðalfundur Öldungadeildar VFÍ (ÖVFÍ).
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Húsið opnar kl. 15:30 með kaffi, vínarbrauði og spjalli.
Makar eru sem fyrr velkomnir.
Klukkan 16:00 hefjast hefðbundin aðalfundarstörf.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar.
Umræður um skýrslu stjórnar.
Breytingar á samþykktum ÖVFÍ. (Sjá neðst).
Önnur mál.
Tillögur sem eiga að fara fyrir aðalfund deildarinnar áttu að berast stjórn ÖVFÍ sjö dögum fyrir aðalfund á netfangið: sigrun@verktaekni.is
Að loknum aðalfundarstörfum, eigi síðar en 16:30, mun Albert Jónsson f.v. sendiherra fjalla um stríðið í Úkraínu.
Léttar veitingar.
Stjórn ÖVFÍ.
Stjórn ÖVFÍ mun leggja fram breytingar á samþykktum deildarinnar.
Núgildandi 7. grein.
Stjórn ÖVFÍ er skipuð fimm mönnum sem kosnir eru á aðalfundi deildarinnar til
tveggja ára í senn. Formaður er kosinn sérstaklega og er talsmaður
deildarinnar. Endurkjör stjórnarmanna er heimilt einu sinni.
Tillaga að breytingu:
7. grein
Stjórn ÖVFÍ er skipuð fimm mönnum, sem kosnir eru á
aðalfundi deildarinnar til tveggja ára í senn. Formaður er kosinn sérstaklega og
er hann talsmaður deildarinnar. Stjórnin skiptir með sér verkum. Tvo af
meðstjórnendum skal kjósa á hverjum aðalfundi.
Hverfi stjórnarmaður úr stjórn áður en kjörtímabili hans líkur, skal kjósa mann í hans stað á næsta aðalfundi.
Ákvæði til bráðabirgða
Á aðalfundi 2023 skal kjósa tvo meðstjórnendur til tvegga ára og tvo meðstjórnendur til eins árs.