Aðalfundur Öldungadeildar VFÍ
Í húsakynnum COWI á Íslandi.
Aðalfundur Öldungadeildar Verkfræðingafélags Íslands 2024 verður haldinn í húsakynnum COWI á Íslandi að Urðarhvarfi 6, miðvikudaginn 29. maí kl. 15:00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Að fundi loknum, um kl. 15:30, munu fulltrúar COWI/Ísland segja frá fyrirtækinu og samruna Mannvits við COWI og greina frá helstu viðfangsefnum fyrirtækisins. Veitingar verða í boði hússins.
Stjórn ÖVFÍ.