Aðalfundur Öldungadeildar VFÍ.
Í höfuðstöðvum Eflu verkfræðistofu.
Aðalfundur Öldungadeildar VFÍ verður haldinn miðvikudaginn 21. maí kl. 15:30. Fundurinn verður í höfuðstöðvum EFLU verkfræðistofu, Lynghálsi 4 Reykjavík.
15:30 Hefðbundin aðalfundarstörf. Kaffi og meðlæti í boði hússins.
16:00 Fulltrúar EFLU segja frá fyrirtækinu, stöðunni í dag, helstu viðfangsefnum og framtíðarhorfum.
16:45-17:00 Rölt um fyrirtækið.
Eins og áður eru makar velkomnir á fundinn.
Stjórn Öldungadeildar VFÍ.
Dagskrá aðalfundar samkvæmt samþykktum ÖVFÍ:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Umræða um skýrslu stjórnar.
3. Kosning formanns og stjórnar.
4. Breytingar á samþykktum ÖVFÍ.
5. Önnur mál.
Athugið að tillögur sem leggja á fyrir aðalfund þurfa að berast stjórn ÖVFÍ viku fyrir aðalfund. (Netfang: tilkynningar@verktaekni.is).