Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands

Haldinn í Verkfræðingahúsi 26. maí kl. 17:00.

  • 26.5.2020, 17:00, Engjateigur 9
  • stjorn_vfi

Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands 2020 verður haldinn 26. maí kl. 17:00 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, Reykjavík. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu meðan á honum stendur. Félagsmenn sem vilja nýta sér það eru beðnir um að skrá sig á tilkynningar@verktaekni.is  í síðasta lagi kl. 13 á aðalfundardegi. Þeir sem skrá sig fá síðan senda slóð á fundardegi til að tengjast útsendingunni. 
Ársskýrsla VFÍ 2019-2020.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.

Samkvæmt félagslögum átti að skila framboðum í stjórnir félagsins og tillögum sem leggja á fyrir aðalfund eigi síðar en 15. febrúar. Dagana 11. - 18. maí fóru fram kosningar í stjórnir félagsins og verður kjöri lýst á aðalfundinum. Engar lagabreytingar liggja fyrir.

Dagskrá aðalfundar VFÍ

  1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
  2. Reikningar félagsins, þ.m.t. reikninga deilda og sjóða félagsins, fyrir undanfarandi starfsár lagðir fram til samþykkis.
  3. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
  4. Tillögur félagsstjórnar.
  5. Lýst kosningu stjórnar.
  6. Kjör endurskoðanda og skoðunarmanns.
  7. Lýst kosningu í stjórn Kjaradeildar félagsins.
  8. Lýst kosningu í stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi.
  9. Laun formanns og stjórnarmanna.
  10. Laga- og reglugerðarbreytingar.
  11. Önnur mál.

Eins og kveðið er á um í reglugerðum kjarasjóða verða þær bornar upp til samþykktar á fundinum. Reglugerðir og starfsreglur sjóða eru á síðu hvers sjóðs fyrir sig á vefnum.

Á myndinni er aðalstjórn VFÍ. Fremri röð frá vinstri: Páll Á. Jónsson formaður Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi, Svana Helen Björnsdóttir formaður VFÍ, Hlín Benediktsdóttir meðstjórnandi. Efri röð frá vinstri: Jóhannes Benediktsson varaformaður VFÍ, Birkir H. Jóakimsson formaður Kjaradeildar VFÍ, Anna Beta Gísladóttir varameðstjórnandi og Árni B. Björnsson framkvæmdastjóri VFÍ. Á myndina vantar Guðrúnu A. Sævarsdóttur, varameðstjórnanda.