Aðalfundur VFÍ 2021

Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands haldinn 29. apríl.

  • 29.4.2021, 17:00 - 19:00, Fjarfundur - Teams/Zoom.

Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands 2021 verður haldinn 29. apríl kl. 17. Vegna sóttvarnaráðstafana verður fundurinn rafrænn. Félagsmenn eru beðnir um að skrá þátttöku með því að senda póst á: tilkynningar@verktaekni.is í síðasta lagi kl. 13 á aðalfundardegi. Þeir sem skrá sig fá hlekk á fundinn í tölvupósti. Ársskýrsla ásamt ársreikningi 2020 verður þá einnig birt á vef VFÍ.

Samkvæmt félagslögum átti að skila framboðum í stjórnir félagsins og tillögum sem leggja á fyrir aðalfund eigi síðar en 15. febrúar. Sjálfkjörið var í stjórnir félagsins og verður kjöri lýst á aðalfundinum. Engar lagabreytingar liggja fyrir.

Samkvæmt reglugerðum sjóða VFÍ á að leggja þær fyrir á aðalfundi félagsins. Engar breytingar eru lagðar til á reglugerðunum. Upplýsingar um sjóðina, m.a. reglugerðir og starfsreglur má nálgast hér: https://www.vfi.is/styrkir-og-sjodir/

Núverandi stjórnir VFÍ.

Nánar um stjórnarkjör

Kosning til aðalstjórnar.

Úr stjórn eiga að ganga: Svana Helen Björnsdóttir, formaður, Hlín Benediktsdóttir og Guðrún A. Sævarsdóttir (varameðstjórnandi). Því er kosið um formann, meðstjórnanda og varameðstjórnanda til tveggja ára. Svana Helen og Guðrún gefa kost á sér til endurkjörs.
(Sjá 11. grein laga VFÍ um stjórnarkjör).

Kosning í stjórn Kjaradeildar.

Úr stjórn Kjaradeildar VFÍ eiga að ganga: Birkir H. Jóakimsson formaður, Erlendur Örn Fjeldsted, Halldór Zoëga, og Gunnar Sigvaldason, varameðstjórnandi. Kosið er um formann Kjaradeildar VFÍ og tvo meðstjórnendur til tveggja ára. Birkir hefur lokið hámarkslengd stjórnarsetu og gefur ekki kost á sér. Aðrir stjórnarmenn nefndir hér að ofan gefa kost á sér.
(Sjá 12. grein laga VFÍ um stjórnarkjör Kjaradeildar).

Kosning í stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi.

Úr stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi eiga að ganga: Páll Á. Jónsson, formaður og Sigurður Valur Ásbjarnarson. Því er kosið um formann, og meðstjórnanda til tveggja ára. Páll gefur kost á sér til endurkjörs.
(Sjá 13. grein laga VFÍ um stjórnarkjör Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi).

Dagskrá aðalfundar

  1. Skýrsla stjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
  2. Reikningar félagsins, þ.m.t. reikninga deilda og sjóða félagsins, fyrir undanfarandi starfsár lagðir fram til samþykkis.
  3. Fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda.
  4. Tillögur félagsstjórnar.
  5. Lýst kosningu stjórnar.
  6. Kjör endurskoðanda og skoðunarmanns.
  7. Lýst kosningu í stjórn Kjaradeildar félagsins.
  8. Lýst kosningu í stjórn Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi.
  9. Laun formanns og stjórnarmanna.
  10. Laga- og reglugerðarbreytingar.
  11. Önnur mál.

Eins og kveðið er á um í reglugerðum kjarasjóða verða þær bornar upp til samþykktar á fundinum. Reglugerðir og starfsreglur sjóða eru á síðu hvers sjóðs fyrir sig á vefnum.