Árangursrík teymi og leyni hráefnið

Sálfræðilegt öryggi innan teyma og vinnustaða.

  • 8.12.2020, 9:00 - 10:00, Engjateigur 9 - vefútsending

Á fundi Verkfræðingafélags Íslands, Verkefnastjórnunarfélags Íslands og Dokkunnar munu Áslaug Ármannsdóttir og Laufey Guðmundsdóttir fjalla um hvernig hægt er að byggja upp sálfræðilegt öryggi innan teyma og vinnustaða. Að auki verður snert á því hvaða tækifæri til árangurs liggja í því að veita samskiptahluta verkefna meiri eftirtekt og tíma. Nokkur tæki og tól verða kynnt til leiks til að auðvelda stjórnendum, verkefnisstjórum og öðrum áhugasömum að auka sálfræðilegt öryggi teyma á meðvitaðan máta. 

Fundurinn verður þriðjudaginn 8. desember kl. 9 - 10 á Zoom.
Hlekkur var sendur í tölvupósti til félagsmanna VFÍ.

Hlekkur gegnum facebooksíðu VFÍ.

Nánar um fyrirlesturinn

Mjög víða í samfélaginu er verið að vinna verkefni, hvort sem það er innan fyrirtækja eða stofnana. Stærðargráða þeirra og flækjustig eru mismunandi en oftar en ekki eru teymi þeim að baki. Í atvinnulífinu hefur verið lögð mikil áhersla á faglega verkefnastjórnun. Gerðar eru verk-, tíma- og kostnaðaráætlanir og besta leiðin fundin. Minni gaumur hefur verið gefinn að mannlega þætti greinarinnar, sem felur meðal annars í sér að byggja upp traust í teymum og skapa öruggt umhverfi fyrir meðlimi þeirra til að segja hug sinn af einlægni og takast á um hugmyndir og aðferðir á uppbyggilegan hátt. 

Um fyrirlesarana

Áslaug Ármannsdóttir starfar sem verkefnisstjóri heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna hjá Háskóla Íslands. Hún er einnig sjálfstætt starfandi verkefnisstjóri, markþjálfi og teymisþjálfi. Áslaug er með MPM-gráðu í verkefnastjórnun og hefur lokið BA gráðu í mannfræði.

Laufey Guðmundsdóttir starfar sem verkefnisstjóri hjá Markaðsstofu Suðurlands. Að auki starfar hún sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi, markþjálfi og teymisþjálfi. Laufey er með MPM-gráðu í verkefnastjórnun og hefur lokið BS gráðu í viðskiptafræði.