Aukaaðalfundur VFÍ - lagabreytingar
Haldinn fimmtudaginn 25. janúar kl. 17
Aukaaðalfundur Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 25. janúar kl. 17. Fundurinn verður haldinn í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 og hefst kl. 17.
Til fundarins er boðað vegna tillögu stjórnar um breytingar á lögum félagsins.
Einnig verður kynnt stefnumótun fyrir félagið sem stjórnin hefur unnið að síðastliðna mánuði og aðdragandi þeirra lagabreytinga sem lagðar eru fram.
Dagskrá
kl. 17:00 Setning - Páll Gíslason formaður VFÍ.
- Lagabreytingar. Tómas Jónsson, lögfræðingur.
- Stefnumótun stjórnar VFÍ. Bjarni S. Jónsson, PhD, Decide Act.
Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér lagabreytingarnar vel og mæta á fundinn.