Austurland: Kynning á kjaramálum
Spurt og svarað um kjaramál.
Fimmtudaginn 31. maí kl. 16:45 verður kynning á kjaramálum hjá Verkfræðingafélagi Íslands. Fundurinn verður í Þórðarbúð, Reyðarfirði.
Elsa María Rögnvaldsdóttir sviðsstjóri kjaramála VFÍ mun fara yfir starfsemi kjarasviðs, nýja kjarakönnun, stöðu kjarasamninga og svara spurningum félagsmanna.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta.
Boðið verður upp á létta hressingu.