Austurland: Námskeið í tækjaforritun
Fyrir börn félagsmanna VFÍ í samstarfi við Vísindasmiðju HÍ.
Verkfræðingafélag Íslands og Vísindasmiðja Háskóla Íslands halda námskeið í tækjaforritun fyrir börn félagsmanna VFÍ á Austurlandi á aldrinum 11 til 16 ára.
Námskeiðið verður í Þórðarbúð, húsnæði björgunarsveitarinnar á Reyðarfirði laugardaginn 16. nóvember kl. 13 – 15.
Forritað verður á Raspberry Pi tölvur og unnið verður með ljóstvistun. Rofar og einfaldir nemar verða tengdir við tölvurnar og þeir notaðir til að stýra forritunum.
Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið sem er ókeypis.
Vinsamlega skráið þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið: tilkynningar@verktaekni.is
Hver félagsmaður getur skráð eitt barn. – Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Þátttakendur mæta með fartölvu með USB tengi. (Látið vita ef þig getið ekki útvegað tölvu).
Skrá þarf nafn barns og aldur, einnig netfang og símanúmer foreldris.