Borgarlínan - staða og framtíð
Morgunfundur fimmtudaginn 7. september.
Kvennanefnd VFÍ byrjar veturinn á skemmtilegum morgunfundi, fimmtudaginn 7. september kl. 8:30 í sal VFÍ, Engjateigi 9. Streymi frá fundinum. Lilja G. Karlsdóttir verkfræðingur flytur erindi sem ber yfirskriftina: Borgarlínan og framtíð samgangna á höfuðborgarsvæðinu. Lilja mun fara yfir verkefnið vítt og breitt, segja frá tilurð þess og eins greina frá stöðunni í dag og framtíð verkefnisins.Allir velkomnir, léttar veitingar í boði. Hlökkum til að sjá sem flesta á þessum fyrsta fundi vetrarins! Skráið ykkur fyrir kl. 16 á morgun miðvikudag: tilkynningar@verktaekni.is
|
M