Fjölskyldudagur verkfræðinnar - AFLÝST
Haldinn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum Laugardal.
Vegna COVID-19 hefur Fjölskyldudegi verkfræðinnar verið aflýst.
Fjölskyldudagur verkfræðinnar verður haldinn í fjórða sinn í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sunnudaginn 6. september. Dagurinn hefur verið einstaklega vel sóttur en frítt verður í garðinn fyrir félagsmenn, maka og börn þeirra. Garðurinn er opinn frá kl. 10 - 17.
Vísindasmiðja Háskóla Íslands verður á staðnum frá kl. 12 - 15.
Verða í skála við hliðina á veitingasölu garðsins.
Boðið verður upp á hressingu.
Skráning hefst þegar nær dregur. Vegna COVID-19 er fyrirkomulag og þátttaka gesta, til dæmis varðandi tæki og prófanir, ekki fullmótuð.
Vísindasmiðja Háskóla Íslands
Í farandsýningu Vísindasmiðjunnar eru í boði tilraunir, þrautir, tæki, tól, leikir og óvæntar uppgötvanir fyrir alla aldurshópa. Gestir geta meðal annars kynnst undraverðum eiginleikum ljóss, lita, hljóðs og rafmagns, teiknað listaverk með rólu, leikið á syngjandi skál, smíðað vindmyllu, mótað heillandi landslag og margt fleira. Öll fjölskyldan getur upplifað vísindin með lifandi hætti, uppgötvað og leikið sér af hjartans lyst.