Fundur Öldungadeildar VFÍ
Orkuskipti og raforkukerfi á tímamótum.
Fimmtudaginn 13. október verður fundur á vegum Öldungadeildar VFÍ. Páll Erland framkvæmdastjóri Samorku mun flytja erindi um orkuskipti og raforkukerfið á tímamótum.
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Húsið opnar kl. 15:30 með kaffi og bakkelsi. Fyrirlestur byrjar kl. 16:00.
Allir félagsmenn VFÍ og makar eru velkomnir á fundi Öldungadeildar VFÍ.