Fundur ÖVFÍ: Verkamannabústaðirnir
Stórir draumar um íbúð alþýðumannsins.
Fimmtudaginn 30. september verður fundur á vegum Öldungadeildar VFÍ (ÖVFÍ). Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Húsið opnar kl. 15:00 með kaffi, vínarbrauði og spjalli.
Klukkan 15:30 mun Pétur Ármannsson arkitekt flytja fyrirlestur um verkamannabústaðina við Hringbraut. Yfirskriftin er: Stórir draumar um íbúð alþýðumannsins.
Eftir fyrirlesturinn er ráðgert, ef veður leyfir, að fara með rútu vestur í bæ og ganga um svæðið. Komið verður til baka í Verkfræðingahús um klukkan 18:00.
Makar eru velkomnir.
Til að auðvelda undirbúning biðjum við ykkur að skrá ykkur með því að senda tölvupóst á tilkynningar@verktaekni.is Vinsamlega látið koma fram í póstinum ef þið ætlið ekki í vettvangsferðina.
Stjórn ÖVFÍ.