Hádegisfundur Kvennanefndar VFÍ
Þátttaka í fjármálamarkaði er mikilvæg leið til að hafa áhrif.
Kvennanefnd VFÍ boðar til hádegisfundar 19. janúar í samstarfi við Arion banka.
Þátttaka í fjármálamarkaði er mikilvæg leið til að hafa áhrif í samfélaginu, samfara því að byggja upp eigin framtíð. Arion banki vill leggja sitt af mörkum til að jafna þátttöku kynjanna á fjármálamarkaði og hefur sett af stað átaksverkefni með það að markmiði að styrkja stöðu kvenna þegar kemur að fjárfestingum.
Sambærilegum verkefnum hefur verið ýtt úr vör á öðrum Norðurlöndum með góðum árangri og vill bankinn ná sama árangri hér.
Kvennanefnd Verkfræðingafélags Íslands er boðið á hádegisfund þar sem markmiðið er að segja frá og ræða verkefnið og skiptast á skoðunum um bestu leiðirnar til að ná þessu markmiði.
Hádegisfundurinn verður í Borgartúni 19, höfuðstöðvum Arion banka, kl 12:00 föstudaginn 19. janúar.
Sætafjöldi í salnum er takmarkaður og boðið verður upp á veitingar svo við biðjum þið vinsamlegast um að skrá þig með því að nota þennan hlekk:
19. janúar - Hádegisfundur með Kvennanefnd Verkfræðingafélags Íslands - Arion banki