Haustferð Austurlandsdeildar
Skráning fyrir 2. október.
Ferðinni er heitið suður á Breiðdalsvík og heimsækja austfirskt brugghús. En þeir hjá Beljanda Brugghús ætla að taka á móti okkur og bjóða upp á bjórsmakk og kynningu á starfseminni. Endum síðan daginn á því að snæða kvöldverð og eiga notalega kvöldstund saman á Hótel Bláfelli.
Skráning hefst hér með og stendur til og með 2. október hjá skrifstofu VFÍ með tölvupósti: tilkynningar@verktaekni.is eða í síma: 535 9300. Til að auðvelda skipulag þarf að taka fram hvar viðkomandi ætlar að mæta í rútuna. með upplýsingum um hvar viðkomandi ætlar að mæta í rútuna til að auðvelda skipulag.
Dagskrá haustferðar AVFÍ föstudaginn 5. október 2018
Rútur fara:
16:00 Egilsstaðir (N1)
16:35 Reyðarfjörður (Molinn)
18:00 Beljandi Brugghús
20:00 Hótel Bláfell
23:00 Heimferð Breiðdalsvík-Egilsstaðir-Neskaupstaður
Hlökkum til að sjá ykkur!