Haustferð Austurlandsdeildar
Hjartarstaðir, Eiðar og Nielsen á Egilsstöðum
Föstudaginn 24. október verður haustferð Austurlandsdeildar VFÍ.
Þetta árið er ferðinni heitið á Egilsstaði og mun dagskráin innihalda skoðunarferðir og dýrindis kvöldverði. Ferðin hefst á heimsókn á Hjartarstaði í Eiðaþinghá þar sem við fáum að sjá tæknivæðingu fjóssins með þjörkum og gjafakerfi. Eftir það verður starfsemi Eiða kynnt með skoðunarferð um svæðið.
Að lokum verður boðið upp á dýrindis kvöldverð á Nielsen á Egilsstöðum. Rúta leggur af stað frá Neskaupstað kl.15:00 og mun hún koma við í Fjarðaáli og jafnvel fleiri stöðum á leið okkar til Egilsstaða.
Stoppistöðvar verða auglýstar þegar þátttaka liggur fyrir. Við biðjum ykkur vinsamlegast að skrá þátttöku og hvaðan þið óskið eftir að taka rútuna. Senda má póst á tilkynningar@verktaekni.is Skráningarfrestur er til kl. 12:00 þann 20. október.
