Haustferð Austurlandsdeildar VFÍ
Skráning er hafin.
Haustferð Austurlandsdeildar VFÍ verður föstudaginn 13. október. Ferðinni er heitið á Djúpavog þar sem verður kynning á starfsemi Búlandstinds sláturhúss og BEWI kassaverksmiðjunnar auk þess sem farið verður í skoðunarferð um svæðið.
Ítarlegar upplýsingar voru sendar félagsmönnum á Austurlandi í tölvupósti.
Vinsamlega skráið þátttöku með því að senda tölvupóst á tilkynningar@verktaekni.is.
Frestur til að skrá sig er til kl. 12:00 þann 6. október.
Stjórn Austurlandsdeildar VFÍ.