Haustferð Norðurlandsdeildar VFÍ
SKRÁNING - Takmarkað sætaframboð.
Laugardaginn 23. september verður haustferð Norðurlandsdeildar VFÍ.
Dagskrá: Mæting 13:45 á bílaplanið sunnan við Íþróttahöllina.
Rúta fer kl. 14:00, höldum út í Dalsmynni og skoðum virkjun Arctic Hydro.
Næst förum við að Hótel Höfða Lodge og fáum að skoða framkvæmdir þar og kynningu á verkefninu.
Að lokinni heimsókn í Höfða Lodge er matur í boði félagsins á Kontornum á Grenivík. Fólk kaupir sér drykki að eigin vali með matnum.
Rútan fer frá Grenivík til Akureyrar um kl 21.
Eingöngu er gert ráð fyrir félagsmönnum í ferðina. Skráning er á netfangið: bjorgvin@avh.is
Hámarksfjöldi er 40 manns, svo um að gera að skrá sig strax.
Frestur rennur út kl 10:00 fimmtudaginn 21. september.