Haustferð Norðurlandsdeildar VFÍ.
Skógarböðin og gagnaver atNorth
Haustferð Norðurlandsdeildar VFÍ verður laugardaginn 11. október.
Við munum hittast á planinu sunna við íþróttahöllina á Akureyri kl. 14:00 og förum saman í rútu.
Við förum í heimsókn í Skógarböðin og skoðum framkvæmdir sem í gangi eru við stækkun baðanna og hótelbyggingu. Einnig heimsækjum við gagnaver atNorth og fáum kynningu á starfseminni og framkvæmdum við stækkun.
Ferðin endar með kvöldverði á Centrum-kitchen & bar, þar verður boðið upp á hamborgara að hætti hússins.
Ferðin er eingöngu fyrir félagsfólk VFÍ.
Skráning í ferðina er hjá Víði Bjarkasyni vidir@raftakn.is fyrir kl. 14 fimmtudaginn 9. október.
Sætaframboð er takmarkað við 40 manns svo endilega skráið ykkur sem fyrst.
Með kærri kveðju stjórn NVFÍ.