Haustfundur BSTR í samstarfi við VFÍ - STREYMI
Staða Rb-blaðanna - Undirbúningur jarðganga.
Byggingarstaðlaráð í samstarfi við Verkfræðingafélag Íslands boðar til haustfundar þriðjudaginn, 3. desember 2024 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9 kl. 12:00 – 13:00. Fundurinn er öllum opinn.
Egill Viðarsson framkvæmdastjóri Verkís og formaður Byggingarstaðlaráðs setur fundinn og segir frá helstu þáttum í starfsemi ráðsins.
Dagskrá:
HMS - Framtíðarsýn og hlutverk Rb-blaðanna.
Gústaf Adolf Hermannsson, sérfræðingur hjá HMS.
Fjallað um virkni og hlutverk nýrrar vefgáttar. Þróun vefviðmóts ásamt umfjöllun um innihald, efnistök og endurskoðun eldri Rb-blaða. Í framtíðarsýn HMS er meðal annars verið leggja aukna áherslu á beina þátttöku starfandi sérfræðinga við gerð efnisins. Auk þess er nú komin opin leið á heimasíðu HMS fyrir ábendingar varðandi RB-blöðin.
Hægt er að skoða gáttina á slóð heimasíðu HMS https://hms.is/fraedsla/rb-blod
Spurningar og umræður.
Nýir jarðgangakostir í undirbúningi.
Freyr Pálsson, sérfræðingur á hönnunardeild Vegagerðarinnar.
Freyr mun fjalla um jarðgöng með tilheyrandi vegagerð sem eru komin á undirbúningsstig og hefur fengist fjárveiting fyrir 2025. Tekin verða sérstaklega fyrir Fljótagöng, breikkun Múlaganga og göng milli Súðavíkur og Ísafjarðar. Fjallað verður um í stuttu máli hvaða vandamál jarðgöngin munu leysa og hvaða valkostir séu til skoðunar.
Spurningar og umræður.
Fundurinn er "Samlokufundur" og fá fundargestir samlokur og drykki í boði Verkfræðingafélags Íslands.
Mynd: Unsplash.