Heimsókn Öldungadeildar VFÍ til Össurar
Miðvikudaginn 16. nóvember kl. 15:00 mun Öldungadeild VFÍ heimsækja fyrirtækið Össur. Verkfræðingarnir Christophe Lecomte og Guðni Ingimarsson munu fræða hópinn um vöruþróunarstarf fyrirtækisins og fleira áhugavert.
Kynningin verður í aðalfundarsal Össurar að Grjóthálsi 5. Móttaka er á annarri hæð. Félagsmenn koma sér sjálfir á staðinn.
Vinsamlega skráið ykkur með því að senda tölvupóst á tilkynningar@verktaekni.is eigi síðar en á hádegi mánudaginn 14. nóvember.