Heimsókn ÖVFÍ í Eddu Hús íslenskra fræða
Miðvikudaginn 10. maí kl. 15 mun Öldungadeild VFÍ heimsækja Eddu Hús íslenskra fræða.
Félagsmenn koma sér sjálfir á staðinn.
Guðrún Nordal prófessor í íslensku við Háskóla Íslands og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum mun taka á móti hópnum.
Makar velkomnir. - Allir félagsmenn VFÍ eru velkomnir á viðburði Öldungadeildar VFÍ.
Um bygginguna:
Edda – Hús íslenskra fræða varðveitir helstu dýrgripi íslenskrar menningar til allrar framtíðar. Þar munu einnig fara fram rannsóknir og kennsla í íslensku.
Byggingin er hin glæsilegasta, formið er sporöskjulaga og brotið upp með útskotum og innigörðum. Að utan er byggingin klædd opnum málmhjúp með skreytingum af handritunum. Húsið er á þremur hæðum auk kjallara undir hluta hússins og opins bílakjallara. (Heimild: verkis.is)
Ljósm: Stjórnarráðið/Sigurður Stefán Jónsson.