Heimsókn ÖVFÍ til Elkem
Öldungadeild VFÍ heimsækir Elkem.
Miðvikudaginn 2. október mun Öldungadeild VFÍ heimsækja Elkem á Grundartanga.
Rúta fer frá Verkfræðingahúsi kl. 12:45 stundvíslega.
Þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður geta makar eða aðrir gestir EKKI komið með í þessa ferð.
Vinsamlega skráið ykkur með því að senda tölvupóst á tilkynningar@verktaekni.is eigi síðar en á hádegi þriðjudaginn 1. október.
“Fyrstur kemur, fyrstur fær”.
Stjórn ÖVFÍ.
Myndin er fengin á vef Akraneskaupstaðar.