Hlutverk stjórnenda í breyttu umhverfi - vinnustofa

Á vegum Deildar stjórnenda og sjálfstætt starfandi í VFÍ.

  • 5.5.2022, 13:00 - 16:00, Engjateigur 9

Eythor-og-IngridÞAÐ ERU NOKKUR SÆTI LAUS. FYRSTUR KEMUR, FYRSTUR FÆR. 

Deild stjórnenda og sjálfstætt starfandi í VFÍ býður félagsmönnum að sækja námskeið með Eyþóri Eðvarðssyni, stjórnendaþjálfara og ráðgjafa hjá Þekkingarmiðlun. Takmarkaður fjöldi er á námskeiðið sem er ókeypis. Því gildir: Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Fimmtudaginn 5. maí 2022 kl. 13:00 -16:00 í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Skráning er með tölvupósti: tilkynningar@verktaekni.is

Félagsmenn VFÍ sem eiga aðild að Deild stjórnenda og sjálfstætt starfandi hafa forgang. Það eru nokkur sæti laus, félagsmönnum í Kjaradeild er velkomið að skrá sig en það gildir fyrstur kemur fyrstur fær. 

Yfirstandandi heimsfaraldur hefur valdið straumhvörfum í því hvernig unnið er á vinnustöðum. Fjölmargir vinnustaðir líta nú á fjarvinnu sem raunhæfan valkost og ýmis samskiptatól og tækinýjungar styðja við þessa vegferð.

Að mörgu að er hyggja þegar kemur að hlutverki stjórnenda í fjarvinnuumhverfi. Það er sem dæmi meiri áskorun að halda utan um starfsfólk og stjórna því og verkefnum í fjarvinnu en þegar unnið er á sama stað. Fjarvinna innifelur þá miklu breytingu fyrir stjórnendur að áherslan er á árangur en minna á viðveru eða verklag. Mikilvægur grundvöllur fjarvinnu er gagnkvæmt traust milli stjórnenda og starfsmanna. Enn meiri krafa er á færni stjórnenda í að lesa í aðstæður og meta hvernig eigi að nálgast starfsmenn. Stundum þarf að hafa skýrar línur og segja hvað eigi að gera og hvernig, stundum þarf bara að hlusta og vera til staðar og stundum eiga stjórnendur að láta starfsmönnum eftir að ákveða hvað eigi að gera. Sama gildir um færnina í að gagnrýna og ræða ólík sjónarhorn og áherslur.

Í þessari hagnýtu vinnustofu verður fari yfir þær áskoranir sem stjórnendur eru að eiga við og hvernig hægt sé að nálgast þær. Einnig verður farið í hvernig hægt er að viðhalda starfsánægju og félagslegum tengslum við þessar breyttu aðstæður.

Meðal þess sem verður tekið fyrir:

  • Kostir og áskoranir fjarvinnu
  • Að halda sameiginlegum takti í fjarvinnuumhverfi
  • Að ræða mál, rökræða og gagnrýna
  • Að skapa gagnkvæmt traust og aðhald

Kennsluaðferðir:

  • Fyrirlestur
  • Verkefnavinna
  • Umræður

Leiðbeinandi: Eyþór Eðvarðsson, stjórnendaþjálfari og ráðgjafi hjá Þekkingarmiðlun, M.A. í vinnusálfræði