Hringfarinn - Á mótórhjóli hringinn í kringum jörðina
Hringfarinn - Kristján Gíslason - segir frá ævintýrum sínum.
Miðvikudaginn 19. febrúar verður fundur á vegum Öldungadeildar VFÍ (ÖVFÍ).
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Húsið opnar kl. 15:30 með kaffi, vínarbrauði og spjalli.
Klukkan 16:00 mun „Hringfarinn“ Kristján Gíslason flytja fyrirlestur um ævintýraferðir á framandi slóðir. Kristján ferðaðist hringinn í kringum jörðina á mótórhjóli og er nú nýkominn heim frá ferðalagi um Afríku.
Makar velkomnir.
Allir félagsmenn VFÍ eru velkomnir á fundi ÖVFÍ.
Til að auðvelda undirbúning biðjum við ykkur að skrá ykkur með því að senda tölvupóst á tilkynningar@verktaekni.is
Eða hringja á skrifstofuna í síma: 535 9300.
Um Hringfarann: https://hringfarinn.is/
Stjórn ÖVFÍ.