Jólafundur Öldungadeildar VFÍ
Fyrirlestur um Kelta á Íslandi - jólalegar veitingar.
Jólafundur Öldungadeildar VFÍ verður föstudaginn 6. desember og hefst með fordrykk kl. 17:30.
Gestur fundarins verður Þorvaldur Friðriksson, fornleifafræðingur og fyrrum fréttamaður, og mun hann fræða gesti um Keltana á Íslandi. Fyrir tveimur árum kom út bók Þorvaldar: ,,Keltar, áhrif á íslenska tungu og menningu“.
Jólalegar veitingar í mat og drykk. Makar eru velkomnir á fundinn.
Aðgangseyrir: kr. 7.500.- pr. mann. Innifalið matur og drykkir.
Fjöldi gesta er takmarkaður. - Skráið ykkur sem fyrst, eigi síðar en á hádegi miðvikudaginn 4. desember, með því að senda tölvupóst á tilkynningar@verktaekni.is
Stjórn ÖVFÍ.