Jólafundur Öldungadeildar VFÍ
Skráning er til hádegis miðvikudaginn 3. desember.
Jólafundur Öldungadeildar VFÍ verður föstudaginn 5. desember í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, og hefst kl. 17.
Gestur fundarins verður Magnús Pétursson fyrrverandi ráðuneytisstjóri og mun hann flytja erindið: Í fótspor norðanpóstanna."
Að loknu erindi Magnúsar verður jólasmáréttahlaðborð, sem er ígildi kvöldverðar.
Vinsamlega skráið ykkur með því að senda póst á sigrun@verktaekni.is eigi síðar en á hádegi miðvikudaginn 3. desember. Munið að láta vita hvort maki/gestur verður með í för.
Verð kr. 7.900.- á mann.
VFÍ býður upp á fordrykk og drykki með matnum.
Dagskrá:
17:00 Fordrykkur.
17:30 Gestur fundarins Magnús Pétursson fyrrverandi ráðuneytisstjóri.
18:00 Jóla kvöldverður.
Greiðsluupplýsingar:
Greiða þarf fyrir matinn, kr. 7.900.- eigi síðar en miðvikudaginn 3. desember.
Bankaupplýsingar: 0334-26-000178
Kt: 680269-6299
Skýring: Jólafundur.
