Kynning á starfsemi Svarma
Félagsmenn VFÍ eru velkomnir á Samlokufund Félags tölvunarfræðinga kl. 11:30 - 13:00 fimmtudaginn, 21. október. Fyrirtækið Svarmi veitir margvíslega þjónustu með drónum. Á fundinum munu fulltrúar fyrirtækisins kynna starfsemina, bakgrunninn, núverandi verkefni og hugbúnað sem er í þróun hjá fyrirtækinu.
Fyrirlesarar: Tryggvi Stefánsson tæknistjóri og Tómas Þorbjarnarson hugbúnaðarhönnuður.
Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9.
Samlokur og léttar veitingar verða í boði fyrir gesti.
Streymt verður beint frá fundinum.
Í boði verður að senda spurningar í gegnum spjallið á rásinni á meðan á viðburðinum stendur. (Ef smellt er á Vimeo merkið neðst til hægri, birtist skjár með spjallinu hægra megin).