Kynningar- og fræðslufundur BSTR
Opinn fundur Byggingarstaðlaráðs.
Byggingarstaðlaráð og VFÍ standa fyrir opnum kynningar- og fræðslufundi þriðjudaginn 5. desember. Fundurinn verður í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, kl. 12-13.
Dagskrá:
Kynning á frumvarpi að nýrri útgáfu að ÍST samningsskilmálar um hönnun og ráðgjöf.
Rögnvaldur Gunnarsson verkfræðingur hjá Vegagerðinni og formaður vinnuhóps um útgáfuna.
Nokkrar breytingar á eftirliti með öryggi í mannvirkjum.
Guðmundur Gunnarsson fagstjóri eldvarna hjá Mannvirkjastofnun.
Aftakaflóð og hönnunarforsendur vatnsfarvega í byggð.
Tómas Jóhannesson fagstjóri á sviði jöklafræði hjá Veðurstofunni.
Boðið verður upp á samlokur og drykki.
Ath. Vegna framkvæmda við Engjateig bendum við á bílastæði á Blómavalsreitnum. Göngustígur er frá stæðinu að Verkfræðingahúsi.