Kynningarfundur: Átak í skimun á ristilkrabbameini
Einstakt átak.
Sjúkra- og styrktarsjóðir VFÍ hafa gert samning við Miðstöð meltingarlækninga um framhald á átaki í skimun á ristilkrabbameini. Markmið átaksins er að veita fræðslu og beita forvarnaraðgerðum gegn krabbameini í meltingarvegi. Kynningarfundur verður miðvikudaginn 21. febrúar kl. 12-13 í Verkfræðingahúsi. Sjóðirnir hafa tvisvar áður staðið fyrir slíku átaki með góðum árangri og eru fyrstu, ef ekki einu, sjúkra- og styrktarsjóðir hér á landi sem hafa gert slíkt.
Kynningarfundur í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9, miðvikudaginn 21. febrúar kl. 12-13.
Boðið verður upp á samlokur og gos.
Á fundinn mæta frá Miðstöð meltingarlækninga:
Ásgeir Theodórs meltingarlæknir, Helgi Kjartan Sigurðsson meltingarskurðlæknir og Kristín Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Nánari upplýsingar um átakið verða sendar sjóðfélögum og birtar hér á vefnum.
Athugið að sjóðfélagar fæddir 1968 og eldri frá boð um að mæta í ristilspeglun en að sjálfsögðu eru allir sjóðfélagar velkomnir á kynningarfundinn.