Kynningarfundur fyrir starfsfólk verkfræðistofa
Samninganefnd VFÍ við FRV boðar til fundar.
Samninganefnd Verkfræðingafélags Íslands við Félag ráðgjafarverkfræðinga boðar til Samlokufundar 20. júní næstkomandi kl. 12-13 í Verkfræðingahúsi, Engateigi 9. Á fundinum verður farið yfir samningaferlið og ástæður þess að ekki er talin önnur leið fær í stöðunni en að vísa deilunni til sáttasemjara. Streymt verður frá fundinum og verður hlekkurinn settur hér inn þegar nær dregur.