Kynningarfundur hjá Norðurlandsdeild VFÍ
Kynning á þjónustu og starfsemi VFÍ.
Fimmtudaginn 12. janúar verður kynningarfundur Verkfræðingafélagsins á Hótel KEA – Múlabergi.
Fundurinn hefst kl. 17 og verður boðið upp á léttar veitingar.
Starfsmenn VFÍ munu kynna starfsemi félagsins og þjónustu.
Tækifæri gefst til að ræða stöðuna á vinnumarkaði, námskeið, sjóði félagsins og fleira sem er í boði fyrir félagsmenn.
Við hvetjum félagsmenn eindregið til að mæta.
Vinsamlega skráið ykkur sem fyrst með því að senda póst á netfangið: tilkynningar@verktaekni.is
Stjórn Norðurlandsdeildar VFÍ.